Trickshot ehf | kt. 450309-0950
Skipholt 15 | 105 Reykjavík
Sími : 571 2058 & 895 3855
www.trickshot.is

Banner

Trickshot vill vinna fyrir þig.

Hér er lögð áhersla á góð vinnubrögð og ánægða viðskiptavini. Myndirðu vilja eitthvað annað?

Hafðu samband »
Vinna

Fulltingi

Trickshot hefur nýlokið við eftirvinnslu á tveimur auglýsingum fyrir Fulltingi í leikstjórn Guðmundar Þórs Kárasonar. Lesa meira...

Víðóma

Trickshot hefur nú ráðið hljóðmann til starfa, en það er hinn ungi og efnilegi Ívar Marteinn Kristjánsson.Lesa meira...

Aftur á fullt

Eftir gott sumarfrí eru verkefnin komin aftur í gang. Lesa meira...

Risaverkefni

Ný auglýsing fyrir Vodafone sýnir risa ganga um Reykjavík, fara í sólbað og kasta frisbídiskum. Reynir Lyngdal leikstýrði þessarri skemmtilegu mynd sem Pegasus framleiddi, en Bjarki og Hemmi í Trickshot sáu um eftirvinnsluna.Lesa meira...

Engar fréttir eru góðar fréttir.

Stundum veit það á gott þegar engar fréttir berast og á það sannarlega við núna. Frábær verkefnastaða í upphafi hefur tryggt næga vinnu og er staðan nú þannig að fjórum þáttum af tíu er lokið af seríunni Nýtt útlit á Skjá Einum og sjö af tólf í Fyndnum fjölskyldumyndum. Því þakka ég vinum og vandamönnum stuðninginn og þolinmæðina. Við sjáumst eftir sex vikur!Lesa meira...

Vefurinn loks í loftið!

Þá er Trickshot.is loksins kominn í loftið! Eins og sjá má er síðan heldur nakin ennþá, en hún kemur til með að batna hratt og örugglega. Allar ábendingar eru vel þegnar!Lesa meira...

Farið vel af stað!

Það mátti segja sér að það væri talsvert stúss að hefja nýjan rekstur. Kennitölustofnun, skattamál, bankar og fleira eru ekki beinlínis sérhönnuð til hraðafgreiðslu. En þetta hefur gengið stóráfallalaust og stefnir í frábæra byrjun. Það er heldur ekki hægt að byrja betur en að vinna með góðu fólki og fyrstu verkefni Trickshot eru tvær nýjar sjónvarpsseríur fyrir Skjá Einn í samvinnu við BaseCamp.Lesa meira...
© 2010 Trickshot ehf Hafðu samband