Trickshot ehf | kt. 450309-0950
Skipholt 15 | 105 Reykjavík
Sími : 571 2058 & 895 3855
www.trickshot.is

Banner

Er vinnustöðin þín að halda aftur af þér?

Hafðu verkfærin í lagi svo þú getir einbeitt þér að því sem skiptir máli.

Hafðu samband »
Ráðgjöf
Trickshot býður upp á ráðgjöf og kennslu á uppsetningu, rekstri og vinnslu á Final Cut Studio. Sem einn af frumkvöðlum Final Cut á Íslandi, hefur Bjarki öðlast mikla reynslu á þessu sviði og vill ólmur deila henni með þér. Bjarki er mikill dellukarl og hefur mjög gaman af því að koma góðu lagi á verkferli og að setja kerfi upp, en er líka maðurinn til að passa upp á verklagið.

Hægt er að halda stutt námskeið fyrir einstaklinga eða hópa, með viðeigandi áherslum í hvert skipti.
stacks_image_4EDFA3BA-08C7-4B14-B36D-3F879C1D9A56
stacks_image_1DA16E43-DD41-4708-B982-22DA79ABC293
Í náinni samvinnu við Apple á Íslandi getur Trickshot boðið upp á tilboð í vélbúnað og hugbúnað, auk uppsetningar og ráðgjafar.

HDV eða ProRes?

Þegar unnið er úr skotnu myndefni er algjört lykilatriði að gæði haldist í öllum liðum vinnsluferlis til að tryggja bestu útkomuna.

Þess vegna er mjög mikilvægt að vita að þjöppun sem er notuð á myndefni, upplausn á grafík ásamt vinnsluhraða vinnustöðvarinnar sé í lagi.

Ekki láta uppsetningu vinnustöðvarinnar þinnar halda aftur af þér.
© 2010 Trickshot ehf Hafðu samband