Fulltingi er lögmannsstofa sem sérhæfir sig í þjónustu á sviði skaðabóta og vátryggingaréttar. Herkill framleiddi auglýsingarnar sem Guðmundur Þór Kárason leikstýrði.
Fulltingi Leikstjóri : Guðmundur Þór Kárason Framleiðandi : Herkill / Ágúst Hauksson Kvikmyndataka : Tómas Örn Tómasson Eftirvinnsla : Bjarki og Hemmi Hljóðsetning : Ívar Marteinn Kristjánsson
Hvað var gert? Bjarki og Hemmi unnu hér náið með Guðmundi og Ágústi að undirbúningi og fylgdust með tökunum til að tryggja að myndefnið myndi virka í eftirvinnslu. Öllu innan rauða rammans í auglýsingunum var svo skipt út fyrir slasaða útgáfu af einstaklingnum.
Ný auglýsing fyrir Vodafone sýnir risa ganga um Reykjavík, fara í sólbað og kasta frisbídiskum. Reynir Lyngdal leikstýrði þessarri skemmtilegu mynd sem Pegasus framleiddi.
Green screen tökurnar voru unnar í Latabæ og tókust frábærlega, enda góður undirbúningur frá Pegasus í bland við frábært auga Kalla Óskars uppskrift að góðri útkomu.
Vodafone "Risafrelsi" Leikstjóri : Reynir Lyngdal Kvikmyndataka : Karl Óskarsson Framleitt af Pegasus
Hvað var gert? Trickshot sá hér um alla grafík. Fólkið var myndað í greenscreen og blandað við plate skot sem voru skotin í Reykjavík. Hreyfingar voru samræmdar við upprunalegu skotin. Að lokum var myndin litaleiðrétt til að skapa stemmninguna sem sóst var eftir.
Sumarherferðin fyrir Egils Appelsín var hressandi þetta árið, en líkt og Vodafone myndin, var henni leikstýrt af Reyni Lyngdal.
Hvað var gert? Trickshot sá hér um að hreinsa burtu öll ummerki um tökulið og merkingar sem voru gerðar til að skilgreina hvar mynstrið ætti að koma inn í mynd. Einnig var sérstaklega hreinsað burt veggjakrot og önnur óhreinindi. Myndin var svo litaleiðrétt til að skapa hlýja sumarstemmningu.
Nokkur verkefni
Óteljandi auglýsingar Með óteljandi snillingum. Meðal góðra vina má telja upp Republik, BaseCamp og Sagafilm.
Iceland's Favourite Places, Reykjavík & The Golden Circle og Akureyri & The Magical North Klipping, samsetning, hljóðsetning og DVD vinnsla fyrir útgáfu. Diskarnir eru á fjórum tungumálum. Í takt við tímann Samsetning á allri kvikmyndinni, auk DVD vinnslu fyrir útgáfu.