Trickshot er glænýtt fyrirtæki stofnað af Bjarka Guðjónssyni. Bjarki hefur í meira en áratug starfað við kvikmyndagerð, lengst af hjá Sagafilm, en einnig hjá BaseCamp og Profilm. Í því ferðalagi hefur Bjarki farið frá því að vinna alfarið í grafík yfir í samsetningu, klippingu en einnig verið að mynda.
Hermann Karlsson tvöfaldaði svo starfsmannafjöldann, en hann vann lengi með Bjarka hjá Sagafilm. Hemmi er með mastersgráðu í animation frá Edinburgh College of Art, er frábær teiknari og hönnuður og því mikill fengur fyrir Trickshot.